Samstarf foreldra og starfsfólks.
Leikskólastjóri skal stuðla að samstarfi milli foreldra og starfsfólks leikskóla með velferð barna að markmiði. Sé óskað eftir stofnun foreldrafélags skal leikskólastjóri aðstoða við stofnun þess. Kjósa skal foreldraráð við leikskóla og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Foreldraráð setur sér starfsreglur. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði. Leikskólastjóri getur sótt um undanþágu til sveitarfélags um stofnun foreldraráðs ef gildar ástæður eru fyrir hendi, svo sem vegna fámennis í leikskóla.
Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar, sbr. 2. mgr. 4. gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi (sótt af https://www.althingi.is/lagas/nuna/2008090.html ).
Stjórn foreldrafélagsins og foreldraráðs skipa:
Formaður: Elvar Bjarki Friðriksson.
Gjaldkeri: Karen Lind Tómasdóttir.
Meðstjórnandi: Dagmara Kozica.
Meðstjórnandi: Þórdís Þórisdóttir.